HOME
  ledurbuxur   Info Hotline: +49-(0)4135-800 621
  Catalog » Leður-upplýsingar
Útgefandi Deutsch
Categories
  Tíska->


  Vinna


  Útiföt


  Reiðmennska


  Börn


  Veiðimennska


  Tilboð


Information
 Við um okkur
 Leður-upplýsingar
 Leðurtegundir
 Úrvinnsla
 Leður-hirðing
 Þvottaleiðbeiningar
 Félagar
 Samband
 Útgefandi
Leður-upplýsingar

Logo Leður er efni, sem þegar var notað á tímum veiðimanna og safnara sem fataefni. Fyrstu gripafundirnir varðandi úrvinnslu á dýrahúðum í leður komu fyrir í eldri steinöld, ca. 8000 f.Kr. og þróaðist aðeins í smáskrefum til ca. 2000 f.Kr. Á miðöldum byrjaði með Loh-sútunina fyrsta upphafið á iðnaði í úrvinnslunni.

Vinnsla og framleiðsla á náttúrlega efninu húð gjörbyltist með uppgötvun sútunaraðferðar í gegnum chromsölt 1853. Frá þeim tíma stóð ekkert í vegi fyrir iðnaðarframleiðslu á leðri.

Frekari og upprunanleg aðferðartilbrigði er sútunin með náttúrlegri olíu- og fitutegundum. Ennþá bjóða margir framleiðendur upp á leðurklæðnað, sem sútaður er á plöntugrundvelli og seldur er með "vegetabiles" leður. Hér eru viðarsútunarefni, eine og Quebracho, Mimosa og Kastanie, eða ávaxtasútunarefnið Tara grundvöllur við tilbúning á leðri.

Þrátt fyrir misskiljanlega rökfærslu,leður sé kalt, þungt eða jafnvel óþægilegt, var eftirspurnin eftir leðri í fataiðnaðinum aldrei háð tímabundnum stefnum eða tilhneigingum. Sérstaklega sem gagnlegar buxur fyrir veiðimenn er leður eftir sem áður eins og best er á kosið. Lágværar í notkun, öndunarvirkar og - á móti öllum hleypidómum - í alla staði góðar í hreyfingum, bjóða leðurbuxur veiðimanninum einnig í erfiðasta umhverfi ekki aðeins vernd gegn kulda og þyrnum, heldur líka í reiðíþróttum eru reiðbuxur úr heilu leðri aftur mjög vinsælar sem slitsterkur og þolinn fatnaður..

Gætið samt að! Jafnvel þótt þessi mjög eftirsótti markaður bjóði upp á sérlega lágt verðlag, eru leðurkaup því nær hreint trúnaðaratriði. Við framleiðslu á leðurklæðnaði missir maður sem lítt kunnugur viðskiptavinur oft yfirlitið vegna mismunandi sútunar- og úrvinnsluaðferða.Sá sem ekki getur áttað sig á hugtökum eins og Nappa, Rússskinn eða Spaltleður, ætti að láta leiðbeina sér ýtarlega af fagmanni.

Núbúk-nautsleðrið - mjúkt sem flauel - er víst sú leðurtegund, sem núna er mest spurt eftir. Þetta létt og lítið slípaða leður er ekki aðeins að útliti til, heldur einnig hvað tilfinningu við fataburðinn snertir fremst í röð. Slétt leður er alls ekki slípað og er það til í mismunandi tilbrigðum yfirborðs, t.d. textúr eða áferð, trefjótt mynstur eða upphleypt. Enn ein létt slípaða leðurtegund er velúr, en í mótsetningu við núbúk verður þetta meðhöndlað á kjöthlið dýrhúðarinnar.

Takið við kaupin eftir leðurþykkt og sútunaraðferð, því frá geymslunni og til að öskubrenna, bæsa, blikna, kljúfa og grópa er langur vegur, sem er ósýnilegur fyrir notandann, þar til buxur myndast úr leðri.

Athugið, að jurtasútað leður á ekki alltaf að vera mikið dýrara en hið venjulega krómsútaða. Hér borgar sig að bera saman!

Samt eru til nokkur einkenni, sem benda á lélega úrvinnslu. Hné- og grópasaumar t.d. eru óþarfir í leðurbuxum og sönnun á mjög sparsamri úrvinnslu hráefnisins leður!

Takið einnig eftir innra fóðrinu!
Satín-efni hafa ekkert að gera í góðum leðurbuxum, því það hindrar hin eðlilegu skipti á svita og raka. í stuttu máli: Buxurnar missa öndunareiginleikann og tilfinningin við fataburð verður meira en óþægileg. Baðmullarfóður eru miklu betri, en ófóðraðar buxur eru einnig ekki óvenjulegar í hærra gæðaflokki. í þessu er það mikilvægt, að þið aflið ykkur upplýsinga um sútunaraðferðina. Í Þýskalandi eru svokallaðar krómsútanir bundnar ströngum fyrirmælum og eftirliti. En erlend framleiðsla þýðir einnig ekki alltaf minni gæði. Bækistöðin Þýskaland er einfaldlega of dýr orðin fyrir mörg millistéttar fyrirtæki, þannig að þau sáu sig tilneydd að færa hluta af framleiðslu sinni til útlanda. Á síðustu árum hafa sérstaklega sútunarhús í Þýskalandi lent undir efnahagslegum þrýstingi. Þannig standa þau upp á síðkastið í þjónustu þeirrar vörumerkjameðvitundar, sem ræður í okkar þjóðfélagi og afgreiða að hluta til nákvæmlega sömu leðurgæði á mjög mismunandi verði. Hér er það undir ykkar fagkaupmanni komið, sem á að þekkja, hvar hægt er fá fyrsta flokks leður á hagstæðu verði, til þess að geta gefið ykkur sem viðskiptavinum áfram þennan verðhagnað. Að vísu er til í Þýskalandi vöruábyrgð fyrir framleiðendur á leðurklæðnaði, en samt ættuð þið með ykkar óskum að snúa ykkur aðeins að virtum fyrirtækjum, sem hafa starfað lengi. Hefðbundin fyrirtæki og annar sérhæfður rekstur bjóða upp á bestu ábyrgð fyrir kaup á leðurframleiðslu í skynsamlegu verð- og gæðahlutfalli.
Við vinnum saman með vörumerkinu Dannecker fatalínan (Collection), sem býður upp á besta verð í hlutfalli við leðurgæði og þvottunarmöguleika í vélum.
Ástæðan hjá mörgum viðskiptavinum, að ákveða sig ekki fyrir klæðnað úr leðri, er framkvæmdin á hirðingunni. Í þessu bjóða nokkrir framleiðendur í millitíðinni upp á leður, sem má setja í þvottavél! En annars er einfalt að hreinsa þetta sterka efni. Með bursta náið þið oft betri árangri en með dýrum efnablöndum.

Quick Find
 
Use keywords to find the product you are looking for.
Dimension Sheet
   Maßblatt

Powered by osCommerce
Programming & support: www.spitzlei-mediendesign.de
Concept & layout: 3SML - Network & Design