|
Annað hvort að fara í þær enn svolítið rakar, eða þrautþæfa þær mjúklega með höndunum alltaf aftur og aftur, á meðan þær þorna. Þannig verða fyrst í stað eitthvað stífar buxur alveg mjúkar. Ef þið hafið gleymt því eitt sinn, einfaldlega væta buxurnar svolítið aftur, t.d. með blómasprautu.
Með núbukleður verður að athuga, að velúrkenndu áhrifin minnka mikið eftir þvottinn. Við að bursta þornaðar buxurnar kröftuglega, fá þær aftur mikið til pellkennt útlit. Í nokkrum tilfellum, aðallega eftir margfalda þvotta, getur verið nauðsynlegt að meðhöndla buxurnar með hæfum meðulum í hirðingu, til þess að þær fái ekki fellingar við að þæfa.
Stytting á buxum:
Buxurnar sem búnar eru til með löngum leggjum, er auðveldlega hægt að stytta á rétta lengd. Þið þurfið til þess aðeins svolítið Pattex-lím. Látið leggina alltaf vera ca. 6-8 cm lengri en hin nauðsynlega lokalengd. Það sem fer yfir þessa viðbót, má sníða af. Það sem skagar þá fram, er brotið inn á við til vinstri og fest í punktum.
Þessi aðferð hefur marga kosti:
Engin spor sjáanleg að utan, eins og t.d. stunguspor við faldasaum. Leggi sem styttast við fataburðinn er hægt að laga aftur til með því að leysa, lengja og líma það, sem brotið var inn á við.
Aldrei að stytta leggina á rétta lengd, því með fataburði togast þær eitthvað upp á við!!
Dökkar buxur lita svolítið frá sér áður en þær eru þvegnar í fyrsta sinn! Gjörið svo vel að forðast ljósa púða og fatahluti!!
|